<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T13:35:18" skst="KÞS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 13:37:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T13:35:18">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="71">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Nýverið gaf Alþýðusamband Íslands út skýrslu um
    greiningu á launakröfum sem aðildarfélög sambandsins gerðu á hendur
    fyrirtækjum hér á landi árið 2025. Það er sláandi niðurstaða úr þessari
    greiningu sem nær til um 80% verkalýðsfélaga innan ASÍ og nær til landsins
    alls. Þau 15 félög sem greiningin nær til gerðu alls 1.209 launakröfur sem
    námu alls um 1.400 millj. kr., 1,4 milljarði kr. Þar af var meiri hlutinn
    vegna almennra launakrafna, eða um 729 millj. kr. Kröfur vegna gjaldþrota
    voru samtals 674 milljónir. Kjarasamningsbrot og launaþjófnaður eru
    viðvarandi vandamál á íslenskum vinnumarkaði og þetta verður að
    uppræta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eins og ég hef áður komið að í þessum ræðustól þá þurfum við
    sterkari ramma utan um þau tilvik þegar laun eru ranglega reiknuð og
    greidd. Þar skiptir auðvitað máli hvort slíkt sé gert með vísvitandi hætti
    eða fyrir hrein mistök og ber að gera greinarmun þar á. Þegar um mistök er
    að ræða eru þau mistök leiðrétt um leið en sjaldnast þegar brotið er
    vísvitandi á fólki. Í sömu greiningu er jafnframt farið yfir það mikla og
    góða starf sem vinnustaðaeftirlit verkalýðsfélaganna sinnir, en á síðasta
    ári ræddi eftirlitið við rúmlega 3.200 manns á vinnustöðum fólks og farið
    var í rúmlega 1.300 eftirlitsheimsóknir. Ég er þeirrar skoðunar að
    vinnustaðaeftirlitið ætti að hafa rýmri lagalegar heimildir til að beita
    sektum þegar fyrirtæki standa ekki rétt að málum. Með því að setja ákvæði
    um févíti í lög getum við dregið úr launaþjófnaði, því það að stela af
    fólki á ekki að líðast og að sjálfsögðu á það að kosta fyrirtækin.
    Upprætum brotastarfsemi á íslenskum vinnumarkaði og beitum
    févíti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>