<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T13:37:35" skst="GIK" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 13:39:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T13:37:35">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="71">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Eftir ábendingar verð ég að biðjast afsökunar
    á því að taka ekki tillit til landsbyggðarinnar í ræðu minni í gær.
    Auðvitað þarf að sjá til þess að þjónusta TR sé einnig í lagi þar.
    Almannatryggingakerfið er orðið 90 ára, ansi þreytt, stagbætt og
    bútasaumað. Þá eru keðjuverkandi skerðingar á lífeyrislaunum allt of
    miklar og því miður, eins og kom fram í ræðu minni í gær, ná þær oft út
    yfir dauða og gröf. Nú er kominn tími á að þetta 90 ára gamla kerfi fái
    varanlega hvíld og að tekið verði upp nýtt og sanngjarnt mannúðlegt kerfi
    sem allir skilja, kerfi þar sem aldraðir og öryrkjar verða ekki fyrir
    afturvirkum skerðingum sem ná ekki bara yfir í félagslega kerfið heldur
    einnig eftir andlát. Við erum með kerfi þar sem árlega 60.000
    einstaklingar af 85.000 einstaklingum fá rangt greitt. Þetta er ekki í
    lagi og við verðum að breyta þessu. En hvað með þá sem standa verst
    fjárhagslega í almannatryggingakerfinu í dag? Stefna okkar á að vera að
    vernda þá og sjá til þess að hækkanir á nauðsynjum verði ekki til þess að
    viðkomandi neiti sér um lífsnauðsynlega þjónustu vegna efnahags. Komugjöld
    vegna heilbrigðisþjónustu hafa hækkað og nýjum komugjöldum í sjúkraþjálfun
    hefur verið komið á. 12.000 kr. á mánuði fyrir hjón á lífeyrislaunum vegna
    sjúkraþjálfunar sem þau þurfa nauðsynlega og það ofan á annan kostnað er
    allt of mikið. Með þessu stefnum við því miður þeim verst settu í það að
    þurfa að neita sér um þessa þjónustu. Afleiðingarnar verða þær að
    viðkomandi endar á sjúkrastofnun sem er versti kosturinn og, það segir
    sjálft, sá langdýrasti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>