<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T13:39:31" skst="SandrS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 13:41:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T13:39:31">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="71">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Í nýliðinni kjördæmaviku vorum við þingmenn á
    ferð og flugi um kjördæmin. Við þingmenn Suðurkjördæmis heimsóttum m.a.
    Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þar fengum
    við ítarlega kynningu á starfseminni og góða innsýn í það mikilvæga starf
    sem þar fer fram á hverjum degi, oft við mjög krefjandi aðstæður. Þegar
    horft er til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands vekur sérstaða hennar athygli
    en hún einkennist af mikilli nýsköpun og lausnamiðaðri nálgun. Má þar
    nefna farsæla uppbyggingu heimaspítala sem gerir sjúklingum kleift að fá
    sérhæfðari þjónustu heima í stofu. Einnig má nefna verkefnið Kraftmiklir
    krakkar en það verkefni sýnir einmitt hvernig sérfræðingar leysa flókin
    verkefni með lausnamiðaðri nálgun. Ef við horfum til Heilbrigðisstofnunar
    Suðurnesja hefur sú stofnun einnig sína sérstöðu. Þar hefur bráðamóttakan
    m.a. fengið gæðastimpilinn viðurkenndur kennslustaður sem er mjög
    þýðingarmikið fyrir starfið sem þar er unnið. Það er ekki síst ánægjulegt
    að sjá að nýjustu mælingar sýna að HSS, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, er
    til fyrirmyndar í öllum þjónustuþáttum og var hástökkvari meðal
    ríkisstofnana. Það er árangur sem starfsfólkið getur svo sannarlega verið
    stolt af. Einnig má til gamans geta að heilbrigðisstofnunin þar þjónustar
    um 30.000 manns sem er svipað og Sjúkrahúsið á Akureyri.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Rauði þráðurinn í þessum heimsóknum var mjög skýr. Við þurfum að
    fylgjast vel með íbúaþróun og tryggja að fjármögnunin fylgi ört vaxandi
    samfélagi og aukinni þjónustuþörf, bæði meðal íbúa og ferðamanna. Íbúum
    fjölgar hratt bæði á Suðurlandi og Suðurnesjum og þjónustan þarf að fylgja
    og vaxa í takt við það. Þess vegna er afar ánægjulegt að sjá að fjármagn
    hefur verið tryggt í að byggja viðbyggingu við Heilbrigðisstofnun
    Suðurlands og að bæta enn frekar aðstöðu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
    m.a. með viðbótum við móttöku sjúkrabíla og fleira. Þótt þessar
    framkvæmdir skipti miklu máli fyrir Suðurkjördæmi allt þá megum við ekki
    láta staðar numið. Góð heilbrigðisþjónusta í heimabyggð er
    grundvallarþáttur í lífsgæðum fólks og öryggi þess og að blómlegar byggðir
    haldi áfram að vaxa.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>