<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T13:41:52" skst="VBB" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 13:43:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T13:41:52">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="71">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Í síðustu viku fórum við þingmenn Suðvesturkjördæmis
    um kjördæmið í kjördæmaviku. Bæjarfulltrúar og þingmenn fengu svo
    síðastliðinn föstudag kynningu á skýrslu sem Samtök sveitarfélaga á
    höfuðborgarsvæðinu létu gera um samspil og virkni í velferðarþjónustu.
    Niðurstaða skýrslunnar er skýr: Rauði þráðurinn í samskiptum ríkis og
    sveitarfélaga er að ríkið setur lög sem sveitarfélögin ætla að framkvæma
    en í heimi takmarkaðra gæða er fjármagnið ekki alltaf nægt og þá er farið
    að forgangsraða og takmarka þjónustu. Þetta veldur núningi milli ríkis og
    sveitarfélaga. Þetta er gráa svæðið í samskiptum þeirra. Þetta er
    kerfislægur vandi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Þjónustan við aldraða er bæði á hendi ríkis og
    sveitarfélaga. Ríkið sér um heimahjúkrun og sveitarfélag um
    stuðningsþjónustu. Sama fólkið fær heimaþjónustu, bæði frá ríki og
    sveitarfélögum. Fyrir nokkrum árum var sett af stað verkefnið Gott að
    eldast þar sem þessi þjónusta var sett á eina hendi. Skilyrði fyrir
    þátttöku er að heilbrigðisstofnun sem rekur heimahjúkrun og sveitarfélag
    sem rekur stuðningsþjónustuna séu sammála um að einn aðili reki samþætta
    þjónustu eða að þau feli í sameiningu þriðja aðila rekstur þjónustunnar.
    Þetta verkefni gengur vel, það sem ég hef séð, og sýnir að það er hægt að
    leysa úr ágreiningi ríkis og sveitarfélaga þegar aðilar átta sig á því að
    það ber að nálgast verkefnið út frá hagsmunum íbúa þar sem samstarfið er
    formlegt með skýrri ábyrgð og pólitískri sýn. Næsta skref verður að láta
    sama fyrirkomulag ná til aldraðs fatlaðs fólks en þar liggur stærsta gráa
    svæðið samkvæmt þessari skýrslu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hvet okkur öll, ríkisstjórn, Alþingi og sveitarfélög, til að
    byggja á þessari reynslu og taka næsta skref saman með hagsmuni íbúa að
    leiðarljósi. </ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>