<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T13:44:07" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 13:46:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T13:44:07">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="71">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Í gærkvöldi lauk 1. umræðu um frumvarp hæstv.
    utanríkisráðherra Viðreisnar um breytta innleiðingu á bókun 35. Það var
    tekist á í umræðunni, eðlilega, og fór hæstv. utanríkisráðherra mikinn en
    hefði mátt dylgja minna um þá sem athugasemdir hafa við málið og eru því
    jafnvel andvígir. Þessu máli er hent inn í þing í fjórða sinn í skugga
    ákvörðunar ESA um að höfða samningsbrotamál gegn Íslandi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Af þessu tilefni langar mig að vekja athygli á áhugaverðum pistli
    Hjartar Guðmundssonar, sem skrifaði fyrr í þessum mánuði á síðu sinni, með
    leyfi forseta: <!--https://www.stjornmalin.is - of löng slóð. Ég leyfði hans stafsetningu og greinarmerkjasetningu að standa.--></ns:mgr>

    <ns:mgr>„Fimm lögfræðingar sem starfa hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA)
    skipa lögfræðingateymi stofnunarinnar gegn Íslandi í málsókn hennar fyrir
    EFTA-dómstólnum vegna bókunar 35 við EES-samninginn. Þar af tveir
    íslenzkir. Þær Sigrún Ingibjörg Gísladóttir og Hildur Hjörvar. Þetta kemur
    fram í tilkynningu á vefsíðu dómstólsins um málið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fróðlegt er að skoða bakgrunn þeirra Sigrúnar og Hildar.“ —
    Forseti. Ég er enn að vitna til skrifa Hjartar Guðmundssonar. — „Sigrún er
    þannig til að mynda fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar í
    Suðvesturkjördæmi, kjördæmi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur,
    utanríkisráðherra og formanns flokksins. Hildur Hjörvar er fyrrverandi
    formaður Hallveigar, ungs jafnaðarfólks í Reykjavík, og var á sínum tíma
    frambjóðandi fyrir Samfylkinguna. Þá má geta þess að hún er dóttir Helga
    Hjörvars, fyrrverandi þingflokksformanns flokksins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Tekin var, sem kunnugt er, ákvörðun um málsóknina á
    miðvikudagsmorguninn af þremur stjórnarmönnum ESA en einn þeirra er Árni
    Páll Árnason, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. Hefur aðkoma hans að
    málinu vakið talsverða athygli vegna bakgrunns hans í hérlendum
    stjórnmálum og verið tilefni talsverðrar fjölmiðlaumfjöllunar. Hins vegar
    er hann, sem fyrr segir, ekki sá eini sem kemur að málsókninni og hefur
    tengsl við núverandi stjórnarflokka.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Af þessu tilefni er þess vegna alveg augljóst mál að einhver hafa
    samskiptin verið á milli utanríkisráðuneytisins, utanríkisráðherra, ESA og
    embættismanna í Brussel frá því að núverandi ríkisstjórn tekur við keflinu
    varðandi þessi yfirvofandi málaferli eða hótun um málaferli sem nú eru
    orðinn hlutur. Jafnvel hafa samskiptin verið töluverð. Það er þess vegna
    nauðsynlegt að utanríkisráðherra hlutist til um að utanríkisráðuneytið
    birti fyrir þingi og þjóð afrit og útskrift af öllum þeim samskiptum sem
    þarna hafa farið á milli.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>