<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T13:46:43" skst="KGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 13:49:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T13:46:43">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="71">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Fyrir nokkru síðan lagði ég ásamt nokkrum þingmönnum
    úr þremur flokkum fram tillögu til þingsályktunar um eyðingu minks úr
    íslenskri náttúru. Tillagan gerir ráð fyrir að hæstv. umhverfisráðherra
    verði falið í samráði við sveitarfélög og aðra hagaðila að móta stefnu og
    aðgerðaáætlun með það að markmiði að eyða þessum skaðvaldi úr íslenskri
    náttúru. Þannig er gert ráð fyrir að gerð verði áætlun um verkið að bestu
    manna yfirsýn, hverjir kæmu að verkefninu, hvernig yfirstjórn þess yrði,
    hversu mikið fjármagn þyrfti, hversu langan tíma verkefnið myndi ná yfir
    og einnig hvernig eftirfylgni yrði háttað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Eftir að hafa rætt við fjölmarga aðila sem hafa áhuga
    á málinu þá telja þeir sem gerst þekkja raunhæft að slík aðgerð væri vel
    gerleg að því tilskildu að undirbúningur væri góður, víðtæk samvinna
    næðist, átakið færi samtímis af stað á öllu landinu og því yrði fylgt
    eftir allt til loka — því yrði fylgt eftir allt til loka. Nú eru rúmlega
    90 ár frá því að minkur tók sér bólfestu í íslenskri náttúru. Minkurinn
    telst framandi tegund og ágeng hér á landi og hefur haft verulega neikvæð
    áhrif á íslenskt lífríki. Skaðsemi hans felst m.a. í afráni á fuglum,
    eggjum og ungum og jafnframt hefur hann mikil áhrif á fiskstofna í
    ferskvatni, sérstaklega hefur verið bent á áhrif minks á fuglategundir sem
    verpa við vatn og á strandsvæðum. Þá hafa verið færð rök fyrir því að
    minkurinn kunni að hafa átt þátt í útdauða keldusvíns sem varpfugls á
    Íslandi og fækkun flórgoða auk þess sem hann hefur mikil áhrif á
    stofnstærð teistu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Ekki er hægt að fullyrða hversu stór minkastofninn
    hér á landi er en menn hafa nefnt tölur eins og 13.000 dýr. Minkaveiðar
    hafa verið stundaðar hér á landi um langt skeið í því skyni að halda
    stofni minksins í skefjum en með misjöfnum árangri. Ýmis tilraunaverkefni
    hafa farið fram sem benda til þess að umfangsmeiri og betri skipulagðar
    aðgerðir geti skilað enn meiri árangri. Við höfum dæmi frá ytri Suðureyjum
    við Skotland. Þar tókst að útrýma mink en eyjarnar eru 3.000 km² að stærð,
    hafa 2.500 km strandlengju og 7.500 vörp. <ns:bjalla/> Þar tókst að útrýma
    mink.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Óþarft er að taka fram hversu mikill ávinningurinn
    yrði ef verkefnið tækist fyrir fuglalíf, fyrir æðarbændur fyrir
    alifuglabændur, <ns:bjalla/> fyrir stangveiðifélög og fyrir fjölmarga aðra
    aðila sem verða fyrir óæskilegum áhrifum af minknum.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="ÞSv">Forseti minnir vinsamlegast á að ræðutíminn
    í störfunum er tvær mínútur.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>