<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T13:49:33" skst="MRK" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 13:51:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T13:49:33">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="71">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Stundum finnst mér á málflutningi minni hlutans eins og
    athyglisspönn ríkisstjórnarinnar geti bara einskorðast við eitt
    viðfangsefni í einu. Það lýsir kannski frekar þeirra hugarheimi frekar en
    einhverju öðru og gefur kannski ágætisskýringu á því verkstoli sem ríkti
    hér í tíð fyrri ríkisstjórnar. En mig langar aðeins að upplýsa þingheim um
    þá staðreynd að það er sannarlega hægt að gera fleiri en einn hlut í einu.
    Það er það sem þessi ríkisstjórn hefur verið að gera með góðum árangri.
    Það hefur til að mynda verið í gangi einhvers konar þráhyggja hjá minni
    hlutanum um að ríkisstjórnin hafi bara getað einblínt á Evrópusambandið
    síðustu mánuði og ekkert annað hafi komist á dagskrá. Það er sem sagt í
    þeirra hliðarveruleika en í okkar raunveruleika þá kláruðum við
    samgönguáætlun, settum á fót innviðafélag, kláruðum tvo rammapakka í
    rammaáætlun, hallalaus fjárlög, settum heildarlög um vindorku og jú,
    kláruðum sannarlega líka þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við
    ESB. En þarna gátum við gert bæði og.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það hefur einnig verið mjög algengt narratíf að við séum svo
    upptekin af Evrópu að við getum ekki horft í aðrar áttir og átt samtöl við
    aðrar vinaþjóðir. Þetta sást vel í umræðunni hér í gær. Á sama degi og
    Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom í opinbera heimsókn til
    Íslands þar sem hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. forsætisráðherra áttu
    gagnleg samtöl við ráðherrann kepptust þingmenn meiri hlutans við að koma
    hingað upp í þessa pontu, í umræðu um bókun 35, og væna ríkisstjórnina um
    að vera með Evrópuþráhyggju. Hvað með efnahagslífið og kjarasamninga?
    sögðu þau líka, eðlilega. Jú, á sama tíma og þingmenn tóku hér tíu
    klukkutíma í að ræða bókun 35 á þinginu í fjórða skipti þá voru hæstv.
    forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra önnum kafnir við að leysa þann
    hnút sem blasti við í kjaradeilum vinnumarkaðarins með að því er virðist
    fínum árangri, sem betur fer.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Því spyr ég: Hefur minni hlutinn ekki athyglisspönn fyrir neitt
    nema Evrópu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>