<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T13:51:54" skst="VPF" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 13:53:49 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T13:51:54">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="71">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar að nýta tækifærið til að hrósa
    spunameisturum ríkisstjórnarinnar. Mig langar að hrósa þeim fyrir hvað
    þeir hafa staðið sig vel í að stýra umræðunni og afvegaleiða hana frá
    öllum sannleika. Hér fyrir kosningar var sagt: Við ætlum ekki að hækka
    skatta á venjulegt fólk. Já, á venjulegt fólk. Svo horfi ég yfir þetta
    nýja fjárlagafrumvarp og það eina sem ég sé eru skattahækkanir á einmitt
    venjulegt fólk. Kílómetragjaldið er hækkað um 16% sem lendir bara á
    venjulegu fólki. Tekjuskattur á einstaklinga er hækkaður. Hækkun
    krónutölugjalda ríkisins — venjulegt fólk. Bankaskattur er hækkaður sem
    mun leiða til hækkana hjá viðskiptavinum bankanna — venjulegt fólk. Ég
    spyr: Eru þetta loforð efnd? Stýrivextir sem voru á niðurleið hafa hækkað
    í tíð þessarar ríkisstjórnar; það eru hækkaðar afborganir í hverjum
    einasta mánuði fyrir venjulegar fjölskyldur. Verðbólgan er sú hæsta í tvö
    ár og étur upp laun launafólks. Þetta eru hærri skattar í hverjum einasta
    mánuði, ekki á auðmenn eða fjármagnseigendur heldur á venjulegar
    fjölskyldur. Öllu illu er svo klínt á fyrrverandi ríkisstjórn en samt eru
    skuldir ríkisins hærri nú en þegar síðasta ríkisstjórn hætti. Nú er ekki
    Covid, nú eru ekki eldsumbrot á Reykjanesskaga. Halli ríkissjóðs er 66
    milljarðar og það eina sem hefur verið gert er að teikna eitthvert núll á
    blað sem ég á eftir að sjá gerast. Svo hreykir núverandi ríkisstjórn sér
    af afrekum síðustu ríkisstjórnar þegar hentar, eins og að telja fólki trú
    um að hægt sé að byggja 200 hjúkrunarrými á tveimur árum. Svo forðast þau
    fjölmiðla sem eru ekki þeim hliðhollir, tala niður stjórnarandstöðuna,
    Sjálfstæðisflokkinn, og tönnlast á því að allt sé á réttri leið.
    Fjölskyldur landsins borga meira og spunameistararnir á yfirsnúningi.<!--Held að hann sé að vísa í orð KFrost þegar hann talar um „loforð efnd“, 
leyfi því þess vegna að standa. --></ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég spyr: Eru þetta loforð efnd? <ns:frammíkall>Heyr, heyr.
    </ns:frammíkall></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>