<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T13:54:00" skst="RagnhJ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 13:55:47 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T13:54:00">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="71">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Í upphafi skyldi endinn skoða. Þegar ég ræddi
    hér á Alþingi í maí 2025 um fyrirhugaðar breytingar á námsmati í
    grunnskólum lagði ég áherslu á að menntakerfið þyrfti að byggjast á gæðum,
    jafnræði og gagnsæi. Þær breytingar sem Alþingi samþykkti síðasta vor
    lögðu m.a. grunn að matsferli og nýju fyrirkomulagi samræmds námsmats. Nú
    stendur hins vegar fyrir dyrum önnur breyting á námsmati. Frá og með
    vorinu 2027 verða lokaeinkunnir nemenda í 10. bekk gefnar á tölukvarða í
    stað bókstafanna A til D. Það er mikilvægt að hafa í huga að þessar
    einkunnir eru ekki prósentueinkunnir. Einkunnin 8 þýðir þannig ekki að
    nemandi hafi náð 80% réttum svörum heldur er hún heildstætt mat á þeirri
    hæfni sem nemandinn hefur sýnt yfir skólaárið með hliðsjón af
    hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Við vitum þegar að mikill munur hefur verið á
    dreifingu lokaeinkunna milli grunnskóla en breyting á kvarðanum tryggir
    ekki ein og sér að námsmat verði sambærilegt milli skóla. Ef nemandi fær 8
    í einum grunnskóla og annar nemandi 8 í öðrum, hvað tryggir að þar búi að
    baki sambærileg hæfni? Þetta skiptir máli þegar nemendur fara úr
    grunnskóla yfir á næsta skólastig. Lokaeinkunnir geta þar haft áhrif á
    möguleika þeirra til áframhaldandi náms. Ef við ætlum að tryggja jafnræði
    nemenda við lok grunnskóla verðum við að geta treyst því að lokamat þeirra
    hafi skýra og sambærilega merkingu, óháð því hvaða grunnskóla þeir sóttu.
    Annað væri einfaldlega ósanngjarnt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>