<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T13:56:00" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 13:58:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T13:56:00">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="71">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það eru nákvæmlega þrjú ár síðan heimurinn
    vaknaði upp við hryllingsfréttir frá Ísrael. Fréttir sem ég held að fáir
    hafi trúað, a.m.k. fyrstu klukkutímana, ef ekki í nokkra daga, eftir að
    fréttir bárust af hræðilegum árásum á Ísrael af hálfu Palestínumanna.
    7.000–8.000 vígamenn réðust inn í Ísrael frá Gaza og drápu þar 1.200
    manns. Flest af þeim voru ungmenni og börn en fullorðnir voru auðvitað
    líka í þeim stóra hópi. Þetta voru hræðilegar árásir sem ég held að hafi
    tekið heiminn marga mánuði að átta sig á, ef menn eru nú þegar búnir að
    átta sig á hryllingnum sem þar fór fram. Frá þessum degi hefur þessi
    vinaþjóð okkar Ísrael verið í stríði. Hún er enn þá í stríði sem vonandi
    sér fyrir endann á en stríðið varir enn. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Á þingi Sameinuðu þjóðanna á dögunum fann hæstv. utanríkisráðherra
    Íslands sig knúinn til þess að atyrða forsætisráðherra Ísraels fyrir það
    eitt að vera með ákall um það á þingi Sameinuðu þjóðanna að fulltrúar
    ríkja Sameinuðu þjóðanna sætu undir ræðu hans. Hæstv. utanríkisráðherra
    Íslands sá sig knúinn til að atyrða forsætisráðherra Ísraels fyrir þetta.
    Um helgina vaknaði ég upp við frétt sem ég trúði jafn illa og ég trúði
    hryllingsfréttunum fyrir þremur árum, frétt um það að í Teheran í Íran,
    aðalstuðningsríki Hamas samtakanna og Palestínumanna, fjármögnunaraðila
    þessa hryllingsstríðs fyrir þremur árum, væri núna verið að hampa
    utanríkisráðherra Íslands á skiltum í þeirri borg. Utanríkisráðherra hefur
    ekki viljað tjá sig um málið. Ég kalla eftir því að utanríkisráðherra
    Íslands tjái sig um þetta mál. <ns:bjalla/> Sjálf myndi ég ekki una mér
    hvíldar fyrr en þetta skilti í Íran, hjá klerkastjórninni og þeim
    brjálæðingum sem þar stjórna, með ljósmynd af sjálfri mér hefði verið
    tekið niður.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>