<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T13:58:33" skst="TÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:00:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T13:58:33">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="71">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Eftir 20 ára starf í fjölmiðlun á fimm fjölmiðlum er
    maður eðlilega svolítið tilfinningalega tengdur þeim vettvangi og þá sér í
    lagi fréttastofunum sem ég vann á hvað mörgum. Ég á því svolítið erfitt
    með að sætta mig við þann raunveruleika sem blasir við manni kl. 18:30
    núna á hverju kvöldi þegar maður fær ekki sjónvarpsfréttir Sýnar.
    Viðvörunarljósin eru búin að blikka lengi, það er alveg klárt mál, en
    eiginlega aldrei meira en síðustu 18 mánuði eða svo. Hæstv. ráðherra þessa
    málaflokks sagði í fyrra að hann bara hreinlega trúði ekki að þetta myndi
    gerast, þ.e. að Sýn myndi fara undir. Svo eftir að við afgreiddum hér enn
    eina hengingarólina til íslenskra fjölmiðla í vor, liðu 80 dagar þar til
    Sýn fór undir. Ég hef verið gagnrýninn á áform ráðherra í þessum efnum og
    það er mitt mat með mína reynslu að skilningurinn þarna á stöðu fjölmiðla
    og framtíð þeirra sé nánast enginn. <ns:skáletrað>Vísir</ns:skáletrað> dró
    út svar frá ráðuneytinu nú í vikunni um hluta áformanna sem eru lögð til í
    nýju frumvarpi, sér í lagi um þetta 2,8 milljarða tekjuþak Ríkisútvarpsins
    sem er hluti af svona hraðbankaáformum hæstv. ráðherra. Áformin fela í sér
    að króna á móti krónu yfir þetta þak renni til annarra fjölmiðla. Gallinn
    er sá að samkvæmt samanburði <ns:skáletrað>Vísis </ns:skáletrað>á svörum
    ráðuneytisins hafa tekjurnar aðeins einu sinni farið yfir þetta mark fyrir
    utan eitthvert bix með uppreiknaðar verðbólgutölur. Þetta er því í raun
    gerviþak því að miðað við svörin og tölurnar breytist afar lítið ef nokkuð
    þegar kemur að ryksugun RÚV á íslenskum auglýsingamarkaði. Þetta er í
    grunninn 250–280 millj. kr. viðbótarstuðningur við einkarekna fjölmiðla og
    það hljómar alveg góðra gjalda vert, ég átta mig á því. En í mínum huga
    með mína reynslu kristallast þarna klárt skilningsleysi ráðherra og
    ráðuneytisins á fjölmiðlum. Ég velkist ekki í vafa um að svona stuðningur
    muni virka vel og virka eins og bjargráð fyrir minni fjölmiðla. En hvernig
    á þetta að glæða íslenska fjölmiðlun lífi á einhverju stærra spektrúmi?
    Það er bara ekki að fara að gerast. Við munum aldrei með þessi áform fá
    annan sjónvarpsfréttatíma, aldrei aftur annan stóran fjölmiðil og það er
    ekki gott. <ns:bjalla/> Það getur vel verið að þarna sé góður hugur að
    baki en þetta er í rauninni ekkert annað en sýndarmennska sem aftur lýsir
    að mínu mati ákveðinni skilningsgjá á milli ráðuneytis fjölmiðla og
    íslenskra fjölmiðla.</ns:mgr>

    <!--segir þetta "fór undir" tvívegis, þyrfti of miklar tilfæringar til að laga það /st.-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>