<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:01:11" skst="KÁB" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:03:18 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:01:11">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="71">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Rannsóknir hafa lengi sýnt hversu mikilvægt það
    er fyrir börn að hreyfa sig og taka þátt í íþróttum og tómstundum. Þar
    eflist ekki aðeins líkamleg heilsa heldur líka félagsleg tengsl, vellíðan
    og tilfinningin fyrir því að tilheyra. Sem betur fer bjóða flest
    sveitarfélög nú frístundastyrki. Þeir eru þó misháir og reglurnar ólíkar.
    Ég hef leitt stýrihóp mennta- og barnamálaráðherra sem unnið hefur að
    fyrstu heildstæðu stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn fátækt barna.
    Eitt stærsta verkefni okkar var einmitt að skoða hvernig tryggja megi
    þátttöku barna í íþróttum og tómstundum, óháð efnahag foreldra. Í samráði
    okkar kom skýrt fram að frístundastyrkurinn dugar ekki einn. Stundum nær
    hann aðeins yfir hluta æfingagjaldsins en síðan kemur allt hitt; skór,
    búningar, búnaður, mótsgjöld, ferðalög og gisting. Þess vegna fagnaði ég
    nýlegu viðtali við Viðar Halldórsson prófessor. Hann ræddi þá mótsögn að
    hugsjónin sé íþróttir fyrir alla en tekjulægri fjölskyldur hafi síður
    tækifæri til þátttöku. Hann ræddi jafnframt aukna markaðsvæðingu og
    afreksvæðingu íþróttastarfs barna. Þetta rímar mjög vel við niðurstöður
    okkar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En hvað getum við gert, frú forseti? Í þingsályktunartillögu um
    stefnu og aðgerðir gegn fátækt barna sem þegar hefur verið birt í
    samráðsgátt eru þessi mál útfærð nánar. Þar er m.a. gert ráð fyrir auknum
    stuðningi við börn á tekjulágum heimilum og samfélagslegum sáttmála um
    jafnt aðgengi barna að frístundastarfi. Vandinn einskorðast þó ekki við
    tekjulægstu fjölskyldurnar heldur teygir sig langt upp eftir
    tekjuskalanum. Því þurfa ríkið, sveitarfélögin og hreyfingarnar að
    kortleggja allan kostnað og setja sameiginleg viðmið um hófleg gjöld og
    kröfur vegna búnaðar og ferðalaga. Þetta er ekki einfalt verkefni en
    samfélagslegur sáttmáli getur verið grunnurinn að því að allir leggist á
    eitt um að halda kostnaði niðri og gera íþróttir raunverulega aðgengilegar
    öllum börnum. Það er ekki nóg að barn hafi efni á að byrja, það þarf líka
    að hafa efni á að vera með.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>