<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:03:27" skst="HHL" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:06:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:03:27">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="71">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að vitna til orða sveitarstjóra
    Mýrdalshrepps varðandi ógnina af sjávarflóðum, með leyfi forseta:
    </ns:mgr>

    <ns:mgr>Ef ekki verður brugðist við mun þjóðvegurinn að endingu fara í
    sundur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mýrdalshreppur er ekki einn í þessari stöðu.
    Suðurnesjabær hefur þegar gefið út að náttúruvá sjávarflóða sé ein sú
    helsta sem steðjar að bænum og bærinn hefur þegar upplifað neyðarástand
    sem snýr að þessum þætti. Einnig má nefna Akranes en þar urðu miklar
    skemmdir í mars 2025 sem varða þessa náttúruvá. Við gætum haldið áfram út
    á Granda, til Akureyrar. Staðan er einfaldlega sú að sjávarflóð eru
    algengur nýr veruleiki vegna landrofs, vegna loftslagsbreytinga og annarra
    umhverfisþátta sem við verðum að taka betur á. Hættan er okkur morgunljós
    en samt er eins og kerfin okkar nái ekki utan um þessa hættu. Það er eins
    og hún falli milli skips og bryggju, falli á milli þess að við séum að
    taka þetta inn í neyðaraðgerðir eða langtímaaðgerðir. Viðbrögðin við
    ógninni þurfa hins vegar að komast í fastan farveg og mig langar að taka
    dæmi um áhættuna út frá þjóðveginum sem liggur í gegnum Vík. Þjóðvegurinn
    í gegnum Vík í Mýrdal er ekki bara lífæð fyrir öll samfélögin sem eru
    fyrir austan Vík, hann er líka lífæð fyrir atvinnulíf. Við erum að tala um
    verðmæti sjávarútvegs, landbúnaðar og fleiri atvinnugreina eins og
    ferðaþjónustunnar sem treysta á þennan þjóðveg. Ef upp kemur sú staða að
    þjóðvegurinn rofnar mun það hafa mikil áhrif á verðmætasköpun á svæðinu og
    það er til mikils að vinna að við séum að fjárfesta hér. Samt er það
    þannig, virðulegi forseti, að fjárframlög lækka til sjóvarna, samkvæmt
    nýrri samgönguáætlun, úr 181 millj. kr. í 144 millj. kr. árið 2030.
    <ns:bjalla/> Þetta er ekki viðunandi ástand. Almannavarnir eru að fókusera
    á þætti eins og skriðuföll og <ns:bjalla/> ofanflóðavarnir. Við þurfum
    líka að bregðast við hér. </ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="ÞSv"> Þá er óhætt að minna þingmenn aftur á að
    ræðutíminn í störfunum er tvær mínútur.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>