<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:08:15" skst="ÁBH" tegflm="Þ" tegr="K" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:09:03 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:08:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="b" nr="153">
      <ns:málsheiti>kortlagning á velferðarumhverfi barna og fjölskyldna
      þeirra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Markmiðið með þessari skýrslubeiðni er að fá
    fram ítarlega heildarkortlagningu á velferðarumhverfi barna og
    fjölskyldna, nokkuð sem ríkisendurskoðandi benti á að hefði þurft að eiga
    sér stað áður en farsældarlögin voru innleidd hérna fyrir fimm árum síðan.
    Það er nefnilega þannig að til þess að samþætta þjónustu og gera hana
    aðgengilega hratt og vel þarf hún að vera til staðar og aðgengið þarf að
    vera greitt. Ég tel að þessi kortlagning sé gott tæki til þess að við hér
    getum fengið að sjá nákvæmlega hvar götin í kerfinu okkar eru. Hvað er vel
    gert? Hvar þarf að bæta í? Hvar liggja mörkin milli sveitarfélags og
    ríkis? Og annað sem býr til heildarsýn, sem ég held að sé mjög mikilvægt í
    þessum málaflokki. Ég óska eftir stuðningi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>