<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:09:14" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="K" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:10:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:09:14">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="b" nr="153">
      <ns:málsheiti>kortlagning á velferðarumhverfi barna og fjölskyldna
      þeirra</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að þakka hv. þm. Ásu Berglindi
    Hjálmarsdóttur fyrir þessa skýrslubeiðni og þeim sem flytja hana með
    henni. Ég held að það sé mikilvægt að við fáum þessa kortlagningu. Þetta
    er ofboðslega mikilvægt mál sem ég veit að brennur á þingheimi öllum. Ég
    styð þar af leiðandi þessa skýrslubeiðni. En ég vil líka nota tækifærið
    til að hvetja okkur sem hér erum inni til að finna leiðir til að tryggja
    það að lögin um farsæld barna og markmiðið sem að var stefnt þar, sem ég
    held að hafi verið mikil sátt um, nái fram að ganga. Ég nefni þetta
    sérstaklega hér vegna þess að ég veit að við þingmenn höfum örugglega öll
    fengið umræðu um þetta í kjördæmavikunni, það sem brennur á
    sveitarfélögunum núna varðandi það fjármagn sem verið er að taka frá
    sveitarfélögunum og færa yfir í aðra þjónustuþætti er tengjast farsæld
    barna án samtals við þau. Við verðum að finna lendingu í þessu máli. Það
    er ekki hægt að koma með svona mikilvæg og brýn mál og tryggja ekki að
    bæði þingið, framkvæmdarvaldið og sveitarfélögin vinni saman að
    þeim.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>