<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:10:57" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:12:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:10:57">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Hér á dagskrá þingsins í dag er framhald 1.
    umræðu um frumvarp hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingu á
    húsaleigulögum. Ég verð að segja að mér finnst skjóta skökku við að málið
    sé á dagskrá í dag í ljósi ummæla sem fallið hafa, m.a. af hálfu
    seðlabankastjóra sem hefur nú bara lýst efni málsins sem heimskulegu, en
    ekki bara í því ljósi heldur einmitt í ljósi þeirrar umræðu sem við áttum
    hér um málið á mánudaginn við 1. umræðu, við upphaf þeirrar umræðu. Þar
    kom einmitt fram óánægja þingmanna með skort á samráði við samningu þessa
    frumvarps og kynningu á því í aðdraganda framlagningar þess á þinginu.
    Umræðan verður auðvitað mjög grunn og undarleg og kannski skökk þegar
    þingmenn fá ekki innsýn í aðdraganda vinnu að lagafrumvarpi sem þessu, sem
    varðar marga mjög mikið og efnahagslífið allt mjög mikið. Nú er komin í
    ljós þessi einkunn seðlabankastjóra um að málið sé heimskulegt og ég hefði
    talið fara betur á því að fresta umræðu um þetta mál til að gefa
    <ns:bjalla/> þingmönnum kost á að kynna sér það til hlítar fyrir 1.
    umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>