<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:12:31" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:13:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:12:31">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég held að það sé engin ástæða til að fresta þessu
    máli og láta yfirlýsingagleði ágæts kunningja míns trufla okkur. Hann
    hefur áður verið með hinar og þessar yfirlýsingar, svo sem um tásumyndir
    og að ungmenni eigi að búa lengur heima hjá sér. Þetta mál sem er hér til
    umræðu er einfaldlega að færa reglur varðandi húsaleigumarkaðinn eitthvað
    í átt við það sem er á hinum Norðurlöndunum. Það ætti því miklu frekar að
    stuðla að verðhjöðnun en verðhækkun. Þess vegna er ég mjög hissa á því að
    ágætur kunningi minn, seðlabankastjórinn, skuli taka þessu máli svona
    illa. Ég vænti þess, þegar hann skoðar málið nánar, að þá muni hann frekar
    gefa frá sér jákvæða yfirlýsingu. Ég ætla ekki að segja hver hún verði en
    það er alltaf gaman að hlýða á hann, hvort sem það er hvað varðar þetta
    mál eða önnur. En eru aðrir seðlabankastjórar í Evrópu með <ns:bjalla/>
    svona yfirlýsingar um hitt og þetta? Nei. Ég held að við verðum að skoða
    þetta í því ljósi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>