<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:15:05" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:16:25 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:15:05">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég kom hér upp til að taka undir með hv.
    þingmönnum Sigríði Á. Andersen og Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Mér
    fannst hins vegar það góða við þessi orðaskipti hér að þetta dró alveg
    saman efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson, sem
    er nú öflugasti stjórnarþingmaðurinn, lítur svo á að þegar
    seðlabankastjóri tjái sig sé það bara einhver kunningi hans eitthvað að
    hjala. Honum finnst það bara hundleiðinlegt. Þetta er efnahagsstjórn
    ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Það er bara einhver kunningi að
    hjala eitthvað og hann bara hvetur hann til að hætta því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þetta er ástæðan fyrir því að verðbólgan fer
    ekki niður. Þegar við erum með ríkisstjórn sem hlustar ekki á fjármálaráð,
    hlustar ekki á seðlabankastjóra, hlustar ekki á neinar ráðleggingar
    <ns:bjalla/> helstu sérfræðinga þá er títtnefnt plan ekki að virka. Ég
    hvet, virðulegi forseti, stjórnarmeirihlutann til að kæla þetta mál aðeins
    og skoða það betur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>