<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:16:36" skst="DBE" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:17:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:16:36">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ætla að blanda mér aðeins í þessa umræðu.
    Eins og raunar þingmaður Samfylkingarinnar gerði í upphafi 1. umræðu vek
    ég athygli á því að HMS flaggaði því í greiningu sinni fyrir hálfu öðru
    ári, að vegna þess að leiguverð hefði þróast hægar heldur en
    fasteignaverð, m.a. vegna tilkomu óhagnaðardrifinna félaga, tvöföldunar
    stúdentaíbúða og annarra aðgerða á leigumarkaði, væri hætta á því, ef
    ekkert væri að gert, að leiguverð myndi þróast hraðar heldur en aðrir
    þættir í efnahagslífinu og það hefði m.a. bein áhrif á verðbólgu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég átta mig á því að það er á margt að líta í þessu og ef
    leigubremsa er ekki tímabundin getur hún haft óæskileg áhrif til lengdar.
    Þetta er einfaldlega eðlilegt að skoða í nefnd, skoða öll gögn málsins og
    ég spái því að niðurstaða flestra þingmanna og þeirra sem skoða þetta með
    opnum gagnrýnum augum verði sú að leigubremsa við núverandi aðstæður geti
    verið nákvæmlega það sem þarf fyrir leigumarkaðinn, verðbólguna og
    efnahagslífið. En þá þarf líka að klára umræðuna og fá málið í
    nefnd.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>