<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:18:02" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:19:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:18:02">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Sigríði Á.
    Andersen. Ég vil hvetja hæstv. forseta til að skoða það allverulega í
    ljósi orða seðlabankastjóra núna í morgun um að þetta væri heimskuleg
    aðgerð. Hann fór svo ítarlega yfir það hvað þetta þýddi og sagði að þetta
    væri nánast 101 í hagfræði. Í ljósi þeirra alvarlegu athugasemda sem hafa
    komið frá Seðlabanka Íslands þá skulum við byrja á því að taka þetta mál í
    samráðsgátt. Það sem verra er, og er mun verra, er að í gær var undirrituð
    framlenging á kjarasamningum við breiðfylkinguna svokölluðu og þar er
    þetta mál inni. Þetta frumvarp er einn hluti af kjarasamningunum sem voru
    undirritaðir í gærkvöldi, virðulegur forseti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég legg til að þetta mál, virðulegur forseti, byrji á því að fara
    í samráðsgátt, eins og mál eiga að gera, og fari í eðlilegan farveg og
    síðan verði umræðan tekin.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>