<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:19:18" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:20:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:19:18">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það kom ítarlega fram, held ég, í umræðunni hér um
    daginn þegar við vorum að ræða þetta mál að það var alloft bent á að þetta
    mál, eins og önnur slík, ætti auðvitað heima í samráðsgátt og það var
    tiltölulega vel rökstutt. Kannski er þingheimi ljóst nú að það hefði betur
    gert það því að þá værum við að fá svona umsagnir og einkunnir, eins og
    seðlabankastjóri er að gefa frumvarpinu núna, inn í samráðsgáttina til
    umfjöllunar í nefnd frekar en í fjölmiðlana. Það hefði bara styrkt
    þinglega meðferð málsins. Þannig að ég ítreka, frú forseti, mikilvægi þess
    að svona mál rati inn í samráðsgáttina og að það sé ekki notaður einhver
    rökstuðningur um að það hafi efnis frumvarpsins vegna þurft að fara þessa
    leið. En þá minni ég aftur á það að gildistakan er 1. júlí 2027.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>