<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-10-07T14:20:31" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:21:49 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:20:31">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ummæli seðlabankastjóra eru hér til umræðu. Að mínu
    mati eru þau fullkomlega óábyrg, sérstaklega í ljósi þess að við erum,
    eins og hv. þm. Sigurjón Þórðarson kom inn á undir fundarstjórn í sinni
    ræðu, að nálgast réttarvernd þá réttarvernd sem íbúar á leigumarkaði búa
    við á Norðurlöndunum. Er seðlabankastjóri að segja með sínum yfirlýsingum
    að stjórnvöld, t.d. á Norðurlöndunum, Svíþjóð, Finnlandi, Skandinavíu,
    kunni ekki grundvallarhagfræði? Er seðlabankastjóri raunverulega að segja
    það? Ef seðlabankastjóri er að tala um að vera á móti verðstýringu, hvað
    segir það um stýrivaxtahækkanir og stýrivexti almennt, sem eru ekkert
    annað en verðstýring á því sem kostar að fá peninga lánaða? Ég skil ekki
    þessar yfirlýsingar og ég skil ekki þennan mótþróa. Ég skil það hjá
    stjórnarandstöðunni sem er á móti öllu sem við reynum að gera til þess að
    bæta stöðu þeirra sem höllum fæti standa í okkar samfélagi, <ns:bjalla/>
    öllu, í einu og öllu. Ég hvet ykkur til að endurhugsa þetta. <ns:bjalla/>
    Keyrum þetta mál áfram og klárum það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>