<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:22:05" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:23:33 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:22:05">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hún er náttúrlega að dragast enn þá skýrar upp
    þessi mynd að ríkisstjórn Íslands lítur svo á að helsta efnahagsvandamálið
    séu ráðleggingar sérfræðinga. Það er helsta vandamálið. En gæti það verið
    að ástæðan fyrir því að planið virkar ekki, sleggjan virkar ekki,
    vextirnir hækkuðu eftir að ríkisstjórnin tók við og hóf aðgerðir sína sé
    sú að ríkisstjórnin hlustar ekki á sérfræðinga og seðlabankastjóra? Er
    einhver möguleiki á því? Gæti það verið? Allt það sem ríkisstjórnin
    sagðist ætla að gera hefur ekki gengið eftir. Fjármálaráð sem samanstendur
    af tveimur doktorum í hagfræði og einum master — það var ekkert gert með
    það. Lög um opinber fjármál brotin. Síðan koma hæstv. ráðherra og hv.
    þingmaður og fara að tala um þennan seðlabankastjóra sem veit ekki neitt
    um hvað hann er að tala <ns:bjalla/> og þau skilja ekkert í þessu og þeim
    finnst ótrúlega eðlilegt að hann sé að tjá sig. Gæti verið að vandamálið
    sé ekki sérfræðingarnir? <ns:bjalla/> Gæti það verið? Gæti verið að það sé
    ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem er helsta vandamálið þegar kemur
    að baráttunni gegn verðbólgu? Já, það gæti verið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>