<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:23:46" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:25:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:23:46">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er ótrúlegt að hlusta hér á orð hæstv.
    ráðherra þegar hann kemur upp og talar um óábyrgt tal seðlabankastjóra.
    Þetta er sami söngurinn og heyrðist þegar var verið að tengja örorkubætur
    við launavísitölu, sem var sagt að myndi kosta í mesta lagi 3 milljarða og
    er komið í ljós núna að mun kosta 9 milljarða. Þá heyrðist sami söngurinn
    um viðvörunarorð Seðlabankans sem fékk ekki einu sinni að koma fyrir
    nefndina. Það er ekki að ástæðulausu að flest mál Flokks fólksins fara
    bara ekki í samráðsgátt. Þetta eru svo slæm mál og ef menn eru í
    einhverjum vafa ættu þeir að horfa á þingmenn Viðreisnar sem læðast með
    veggjum, þöglir um gangana, í hvert einasta skipti sem þingmál Flokks
    fólksins koma hér á dagskrá. Hv. þingmenn Viðreisnar eru vitnisburður um
    það hvað þessi mál eru léleg og ástæða fyrir því að það er ekki hægt að
    setja þau í samráðsgátt og þau eru keyrð hérna í gegn.
    <ns:bjalla/></ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég hvet þig, í ljósi þess að það er búið að
    benda á af seðlabankastjóra að þetta sé heimskuleg aðgerð, til að setja
    þetta í samráðsgátt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>