<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:25:17" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:26:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:25:17">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langar bara aðeins að koma upp og blanda
    mér í þessa umræðu sem mér finnst vera orðin mjög áhugaverð, sérstaklega
    eftir innkomu hæstv. ráðherra Ragnars Þórs Ingólfssonar og hans ræðu hér
    sem ég held að við þurfum bara aðeins að kryfja og fara betur yfir hér
    eftir þennan lið og hlusta á hvað hæstv. ráðherra var raunverulega að
    segja. Það er náttúrlega með ólíkindum að koma hér upp og halda því fram
    hér í þessum ræðustóli Alþingis að stjórnarandstaðan sé á móti öllu sem
    verið er að gera til að bæta hag og kjör almennings í landinu, ekki
    einhverju heldur öllu. Þá langar mig bara að benda hæstv. ráðherra á
    fjárlagafrumvarp hans eigin ríkisstjórnar sem er að fara að leggja
    gríðarlegar byrðar og álögur á einmitt tekjulægsta fólkið í landinu. Það
    er t.d. það sem við höfum verið að benda á. Er hlustað á það? Nei, það er
    ekkert hlustað á það. Er hlustað á seðlabankastjóra? Nei. Að leggja að
    jöfnu hér að seðlabankastjóri sé með ákvarðanavald <ns:bjalla/> varðandi
    stýrivexti og svo þetta ágæta frumvarp sem við erum hér að ræða er
    náttúrlega galið, virðulegur forseti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>