<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:26:45" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:27:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:26:45">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætlaði ekki endilega að taka þátt í þessari umræðu
    en gat ekki orða bundist eftir ummæli hæstv. félags- og
    húsnæðismálaráðherra þar sem hann sagði að ummæli seðlabankastjóra í
    morgun væru óábyrg. Ég vil setja þessi ummæli í samhengi við önnur ummæli,
    ræðu hæstv. forsætisráðherra á ársfundi Seðlabankans 10. apríl 2025 þar
    sem hún sagði efnislega, eins og hún hefur svo sem gert áður, að þegar
    ríkið gerir minna í ríkisfjármálum til að kveða niður verðbólgu þá þurfi
    Seðlabankinn að gera meira. Núna sitjum við í súpunni með ríkisstjórn sem
    hlustar ekki á neinn. Það er sök sér að hún hlusti ekki á okkur í
    stjórnarandstöðunni en hún hlustar ekki á fjármálaráð, hún hlustar ekki á
    sérfræðinga fjármálaráðuneytisins og núna eru ummæli Seðlabankans dæmd
    óábyrg af hæstv. ráðherra. Kann að vera að þetta sé ástæðan fyrir því að
    efnahagsmál þjóðarinnar eru eins og raun ber vitni?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>