<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:28:08" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:29:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:28:08">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég kom hér í fyrri ferðinni í fundarstjórn forseta og
    talaði til frú forseta og lagði þar áherslu á mikilvægi þess að mál sem
    þessi færu í samráðsgátt. Ég taldi, með vísun til dæma, til ummæla
    seðlabankastjóra, það vera vísbendingu um að slík mál ættu að fara þessa
    leið, enda fara þau alla jafna þessa leið. Með þessu í raun að biðla til
    forseta um að við höldum okkur við þetta verklag til að fá slík viðbrögð
    frekar inn í nefndarstarfið en inn í einhverja pólitíska orrahríð í
    miðlunum. Viðbrögð hæstv. ráðherra við þessu er að koma hér í pontu, horfa
    yfir salinn, sérstaklega á okkur í minni hlutanum og segja að við séum á
    móti öllu. Ég bendi hæstv. ráðherra á að ég lýsti ekki einu sinni afstöðu
    minni til málsins. Ég lýsti afstöðu minni til meðferðar málsins. Það er
    mikilvægt, frú forseti, að gerður sé greinarmunur á þessu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>