<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:29:22" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:30:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:29:22">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Já, mér finnst rétt að ræða fundarstjórn forseta og
    þá kröfu minni hlutans á þingi að seðlabankastjóri stjórni hér hvað fer á
    dagskrá og hvað ekki. Mér finnst það svolítið sérkennilegt, sérstaklega í
    ljósi þess að þetta mál er ekki að dúkka hérna upp bara allt í einu. Það
    er auðvitað verið að halda friði á vinnumarkaði og þetta er einn liður í
    því, sem verkalýðshreyfingin hefur fagnað. Fyrir fram hefði ég haldið að
    seðlabankastjóri og jafnvel Framsóknarflokkurinn hefðu fagnað þessu máli
    en samvinnuhugsjónin virðist nú vera týnd þar. Þegar verið er að ræða
    svona mál til að halda aftur af hækkunum hjá þeim hópum sem standa hvað
    verst í samfélaginu eru menn tilbúnir að rísa upp á afturlappirnar og
    jafnvel heimta það að málið fari ekki á dagskrá, mál sem er liður í því að
    tryggja frið á vinnumarkaði. Ég segi um það: Hugsið aðeins áður en þið
    farið og notið hér stór orð, bæði um þetta mál og önnur mál sem ganga út á
    það að halda góðu samkomulagi og friði í samfélaginu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>