<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:30:42" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:31:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:30:42">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég get svo vel skilið það að fólk óski hér
    eftir að þetta mál verði endurskoðað, þ.e. þessi húsaleigulög. Eins og
    seðlabankastjóri sagði hér á fundi í morgun er þetta auðvitað alveg galið
    mál. En, virðulegur forseti, ég held að við verðum að virða þessum
    stjórnarmeirihluta það til vorkunnar að það eru engin mál til að ræða hér
    í þinginu. Þetta er eiginlega eina málið sem er á dagskrá í dag. Þessi
    ríkisstjórn virðist ekki geta afgreitt nein mál út úr ríkisstjórninni og
    hér inn í þingið, alla vega eru þau mál sem lofað var í þingmálaskrá
    þessarar ríkisstjórnar ekki komin til þingsins. Ég held að það væri hægt
    að afgreiða þetta mál fljótt og örugglega og það ætti bara að vísa því
    aftur til ríkisstjórnarinnar sem þarf augljóslega að endurskoða þetta mál
    því hugmyndin þarna undir er algerlega galin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er líka augljóst að hér vantar hreinlega
    bara mál til að setja á dagskrá. Það er ekkert að frétta hjá
    verkstjórninni miklu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>