<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:31:55" skst="TÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:33:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:31:55">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Rétt til að svara aðeins þeim mikla þinggleðigjafa
    hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni þá er náttúrlega meira en lítið kostulegt að
    heyra þann ágæta mann biðja stjórnarandstöðuna um að hugsa um hvað hún
    segir þegar kemur að stórum orðum. Þetta er jú sami maður og réðst hér í
    pontu að íslenskum fjölmiðlum með þeim afleiðingum að styrkir til þeirra
    voru lækkaðir. Þannig að við skulum aðeins líta í eigin barm hvað þetta
    varðar. Talandi um fleiri stór orð þá var náttúrulega, eins og er búið að
    benda hér áður á, hæstv. ráðherra að ráðast að seðlabankastjóra í þessu
    sama ræðupúlti. Það er lykilatriði líka að bara hlusta á hvað er sagt í
    þessari fundarstjórn. Ég veit að það er mikið að gerast en hv. þm.
    Sigurjón Þórðarson, sem ég hef áður á þessum vettvangi beðið um að opna
    eyrun, hér eru hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar að biðja um að þetta mál
    sé tekið til baka, skoðað betur og jafnvel sett í samráðsgátt til þess að
    fá það betra inn í þingið þannig að seðlabankastjóri Íslands kalli þetta
    ekki heimskulega aðgerð.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>