<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T14:33:14" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 14:34:37 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T14:33:14">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="80">
      <ns:málsheiti>umræða um breytingu á húsaleigulögum</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það sýnir sig enn og aftur að sýndarsamráð
    Samfylkingar og Viðreisnar er betra heldur en samráð Flokks fólksins. Nú
    sitja hér þingmenn Viðreisnar, fáir að vísu orðið, náfölir yfir því máli
    sem hér er rætt og þingmenn Samfylkingar margir sveittir eftir að hafa
    hlaupið undan málinu, eðlilega. Ég heyrði nú ekki allar ábendingar til
    virðulegs forseta en ég held, svona í ljósi þess sem blasir við núna, að
    það hljóti að koma til skoðunar og ég bara bið virðulegan forseta um að
    íhuga það alvarlega, að fresta umræðu um þetta mál þar til það hefur farið
    í eðlilegan farveg þar sem tækifæri gefst til að koma athugasemdum fram,
    svo að þetta verði nú ekki eitthvert furðuútspil í þinglokasamkomulagi í
    desember um að klára jafn ómögulegt mál og hér er á ferðinni, sérstaklega
    gagnvart hagsmunum þeirra sem minnst mega sín, sérstaklega gagnvart
    hagsmunum þeirra. Og ágæta þingmenn Samfylkingar og Viðreisnar, sem ég tel
    mig vita að skilji hversu vont málið er, <ns:bjalla/> vil ég biðja að
    styðja við bakið á þessari nálgun. Málið mun skána, mögulega hverfa en í
    öllu falli skána, <ns:bjalla/> við það að fá eðlilega meðhöndlun í
    aðdraganda framlagningar hér á þingi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>