<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T15:13:15" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 15:15:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T15:13:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni Þorgrími Sigmundssyni
    fyrir hans afbragðsgóðu yfirferð yfir málið. Mig langar hins vegar aðeins
    að fá að eiga orðastað við hv. þingmann í ljósi þess sem seðlabankastjóri
    sagði nú í morgun á fundi peningastefnunefndar þar sem tilkynnt var að
    vextir stæðu óbreyttir. Þá var hann spurður sérstaklega út í þessa
    leigubremsu og þessi húsaleigulög sem við erum að ræða akkúrat hér núna.
    Það er ágætt að halda því til haga að þetta er ekki fyrsta inngrip
    stjórnvalda inn í eignarrétt eða samningsfrelsi fólks. Þetta er alls ekki
    fyrsta inngripið og mér segir svo hugur að þetta verði ekki síðasta
    tilraun hæstv. ríkisstjórnar með Flokk fólksins í fararbroddi til að reyna
    að grípa inn í og hafa sem mest áhrif á eignarrétt fólks.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í ljósi þess og þeirra ummæla sem féllu í morgun hjá
    seðlabankastjóra um að þessi lög væru heimskuleg, þá langar mig að spyrja
    hv. þingmann: Finnst honum það ekki skjóta svolítið skökku við, í ljósi
    þess hversu umdeild lögin eru, jafnvel innan stjórnarflokkanna, það þarf
    ekki annað en að horfa hér á svipbrigði þingmanna Viðreisnar til þess að
    sjá það, finnst hv. þingmanni þá ekki svolítið sérstakt og skjóta skökku
    við að í gærkvöldi voru þessi lög sett inn sem hluti af kjarasamningi við
    hluta verkalýðshreyfingarinnar?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>