<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T15:15:24" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 15:17:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T15:15:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni Jens Garðari Helgasyni fyrir
    spurninguna. Ég var að sjálfsögðu búinn að kíkja á þessa frétt. Þó að ég
    hafi ekki notað jafn stór orð og seðlabankastjóri var ég nú kannski samt
    engu að síður að fjalla um nákvæmlega það sama, þ.e. óttann um að þetta
    kynni að virka öfugt og kynni að gagnast kannski einmitt síst þeim sem
    mest þyrftu á stöðugleika á leigumarkaði að halda.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Og það kemur einmitt fram í máli seðlabankastjóra þar sem segir,
    með leyfi forseta: <!--https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/10/07/leigubremsan_er_augljoslega_mjog_heimskuleg/ //eyb-->„„Þetta
    eru algjörlega röng viðbrögð sem koma leigjendum verst. Ég er ekki viss um
    að það hafi endilega svo mikil áhrif á verðbólgumarkmið eða verðbólguna
    til skemmri tíma litið. Þannig að leigubremsan er augljóslega mjög
    heimskuleg,““ ég tek fram að þetta er bein tilvitnun, frú forseti, „en ég
    held að hún hafi engin sérstök áhrif til skemmri tíma,“ bætti hann við.“
    Þetta er í raun og veru það sem ég var að segja, hv. þm. Jens Garðar
    Helgason, áðan, þ.e. ótti þess sem hér stendur um að þetta hafi ekki þessi
    tilætluðu áhrif, þó að ég skilji tilganginn, heldur geti hugsanlega snúist
    í höndum stjórnvalda á þann veg að ýta undir meiri hækkanir á
    leigumarkaði, einmitt vegna þess að fólk hefur tilhneigingu til að bjarga
    sér. Það gildir ekki bara um þá sem standa höllustum fæti, það gildir líka
    um þá sem þurfa að sjá fyrir um sína rekstrarhagkvæmni, hvort sem það eru
    aðilar sem leigja út bíla eða hús. Það skiptir ekki alveg öllu máli hvað
    þú ert að selja eða leigja. Þú reynir að sjá fram í tímann hver möguleg
    áhrif verða og ég er hræddur um, hv. þingmaður, að þau verði einmitt
    þessi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>