<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T15:17:34" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 15:19:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T15:17:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir
    hans fyrra svar og ég heyri hvíslið í hv. þingmanni. Honum gefst tækifæri
    á að koma hér upp aftur en ég ætla aðeins að fá að halda áfram með það sem
    hæstv. ríkisstjórn var að gera hér í gærkvöldi. Hún er að setja lög, er að
    skuldbinda sig til þess að setja einhver lög inn í kjarasamninga sem ekki
    er búið að samþykkja. Og ummæli seðlabankastjóra eru ekki þau einu. Þegar
    þessi lög voru skrifuð inn í kjarasamningana í gær voru Samtök iðnaðarins,
    Húseigendafélagið og fleiri búin að tjá sig um þetta mál. Þannig að þetta
    var ekki eitthvað sem kom alveg upp úr þurru. Þetta var eiginlega bara
    svona punkturinn yfir i-ið. Þá veltir maður fyrir sér hvað hæstv.
    ríkisstjórn er í rauninni að gera með því að setja inn einhver loforð um
    einhver lög sem strax er komin mikil gagnrýni á og hvort það sé í rauninni
    ekki vísbending um að það verði alveg sama — og þetta verði eins og með
    launavísitöluna fyrir öryrkjana — það verði alveg sama hverjir komi hér og
    bendi þeim á að þetta sé allt della, þetta séu misgjörðir, miklir
    vankantar, þá verður þetta mál keyrt í gegn af því að ríkisstjórnin er
    búin að lofa þessu í kjarasamningum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvað finnst honum um svona
    vinnubrögð og telur hann að það sé í rauninni alveg sama? Við vitum að þau
    munu ekki hlusta á okkur, hv. stjórnarandstöðu, en þau munu líklega ekki
    hlusta á sérfræðingana heldur af því að þetta mál á að keyra í gegn
    óbreytt. Það er búið að skrifa það inn í kjarasamninga, sama hversu
    vitlaust það er.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>