<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-07T15:19:53" skst="ÞorgS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!--i 2026-10-07 15:21:55 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T15:19:53">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="157">
      <ns:málsheiti>húsaleigulög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurninguna og
    biðst velvirðingar á því að ég gleymdi hluta af fyrri spurningunni sem er
    mjög áhugaverður. Það varðaði skort á viðveru og þátttöku fulltrúa
    Viðreisnar í þessari umræðu. Hún er auðvitað bara algjörlega hrópandi.
    Enda held ég að Viðreisn líði ekki vel með þetta mál frekar en nokkur
    önnur sem hafa verið hér til meðferðar í þessu þingi frá því að
    ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við, enda á allt annarri vegferð
    en Viðreisn seldi sig út fyrir að fara á þegar við vorum að hlusta á
    stefnur og strauma í kosningaloforðum í aðdraganda síðustu kosninga. Hér
    hefur komið upp úr kafinu einhver allt annar flokkur, held ég, en fólk gat
    almennt áttað sig á að byggi þar innan húss. Þessi frjálslyndi flokkur,
    sem átti jafnvel að vera með örlitla miðju-hægri slagsíðu og þar fram
    eftir götunum, hefur reynst vera hinn mesti skattaflokkur og er eiginlega
    nær því að vera vinstri flokkur í þessari ríkisstjórn en nokkurn tíma
    miðjuflokkur eða hægri flokkur. Og ekki er það nú til að „ballansera“ af
    efnahagsstefnu Flokks fólksins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En varðandi hina spurninguna þá þekkjum við orðið þessa
    aðferðafræði, hv. þingmaður, þ.e. að við lesum bara í fréttamiðlum úti í
    bæ hvað ríkisstjórnin ætlar að gera og oft og tíðum reyndar bara á til
    þess sérstaklega auglýstum blaðamannafundum. Svo stendur það ekkert
    endilega til og jafnvel alls ekki að taka neitt mark á þeim athugasemdum
    sem berast frá hagaðilum, hvort sem það er úr verkalýðshreyfingunni eða úr
    atvinnulífinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>