<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-10-07T18:08:34" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-07 18:13:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="14" lgþ="158" tími="2026-10-07T18:08:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="158">
      <ns:málsheiti>ákvarðanir nr. 283/2026 um breytingu á XX. viðauka við
      EES-samninginn o.fl.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er ákveðin fegurð í því að hafa þennan
    ófyrirsjáanleika í þinginu og fyrir vikið er gott líka að vera tilbúin með
    framsögu í þessu annars áhugaverða og mikilvæga máli sem undirstrikar
    þýðingu þess fyrir okkur Íslendinga að halda áfram að standa með
    EES-samningnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En, virðulegi forseti, ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um
    staðfestingu tveggja ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar og ætla í
    stuttu máli að gera grein fyrir helstu efnisatriðum þeirra.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í fyrsta lagi er það ákvörðun nr. 283/2026. Með henni er felld inn
    í EES-samninginn annars vegar reglugerð Evrópusambandsins um að koma á fót
    aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis, þetta er kallað
    CBAM-reglugerð, og hins vegar breytingarreglugerð á henni sem bæði
    einfaldar og styrkir aðlögunarkerfið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í öðru lagi er það ákvörðun nr. 287/2026 en hún er nátengd upptöku
    CBAM-reglugerðarinnar í EES-samninginn að því leyti að í henni felast
    útfærslur á tæknilegum atriðum og fjárframlögum EFTA-ríkjanna innan EES
    vegna þátttöku þeirra í CBAM-kerfinu. Markmið CBAM-kerfisins er að jafna
    samkeppnisstöðu iðnaðar innan EES gagnvart iðnaði sem er staðsettur í
    ríkjum utan EES og koma í veg fyrir kolefnisleka. Kolefnisleki á sér stað,
    eins og við vitum, þegar losunarfrek starfsemi færist frá ríkjum sem búa
    að metnaðarfullu loftslagsregluverki, líkt og er innan EES, til annarra
    ríkja þar sem lögbundinn kostnaður vegna losunar gróðurhúsalofttegunda er
    minni. Oft er það Asía, of er það Suður-Ameríka, sem er með misgóð
    regluverk í þessu þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Kerfið á því að verja iðnað innan EES með því að leggja
    kolefnisverð á tilteknar vörur sem fluttar eru inn frá ríkjum utan
    Evrópska efnahagssvæðisins. Þetta er það sem kerfið á að verja, þ.e. að
    passa upp á að sá iðnaður sem er innan EES-svæðisins sé varinn í rauninni
    frá þeim sem hafa minna regluverk utan EES-svæðisins og það skekkir
    auðvitað að einhverju leyti samkeppnisstöðuna um leið. Kerfið tengist á
    endanum ETS-kerfinu að því leyti að kolefnisverð varanna endurspeglar verð
    ETS-losunarheimilda.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þátttaka Íslands og Noregs í kerfinu er mikilvæg til að tryggja
    jöfn samkeppnisskilyrði á innri markaðnum. Það var þannig áherslumál að
    tryggja að ríkin væru ekki meðhöndluð sem þriðju ríki í kerfinu. Það var
    þung áhersla á þetta, búið að vera lengi nokkuð mikil hagsmunagæsla í
    þessu, að við yrðum ekki meðhöndluð sem þriðju ríki í þessu kerfi. Slíkt
    hefði auðvitað getað haft neikvæð áhrif á íslenskan iðnað sem nú tekur
    þegar þátt í ETS-kerfinu, m.a. með stuðningi atvinnulífsins hér
    heima.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. EES-EFTA ríkin eru ekki tengd við tollakerfi
    ESB heldur hefur hvert og eitt þeirra sína eigin tollalöggjöf og
    tollakerfi, enda heyrir sameiginleg tollalöggjöf ekki undir gildissvið
    EES-samningsins. CBAM-kerfið kallaði því á flókna og frekar umfangsmikla
    vinnu, hagsmunagæslu eins og ég myndi allt eins vilja kalla það, við að
    aðlaga kerfið að EES-samningnum. Í ljósi þess voru gerðar nauðsynlegar
    lagatæknilegar aðlaganir þannig að kerfið myndi samræmast undirstöðum
    EES-samningsins. Allir aðilar unnu að mínu mati af mikilli kostgæfni til
    þess að ná akkúrat þeim markmiðum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Upptaka CBAM-regluverksins sýnir því bæði virkni EES-samningsins í
    framkvæmd og hversu dýnamískur hann getur verið þegar hagsmunagæslu er
    beitt strax í upphafi. Þetta er eitthvað sem við þurfum að halda áfram að
    vinna að. Tveggja stoða lausnir á flóknum gerðum Evrópusambandsins eru vel
    tækar í dag ef við leggjumst á eitt við að finna raunhæfar
    lausnir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Innleiðing þessara gerða kallar jafnframt á setningu sérstakra
    laga um aðlögunarkerfi yfir landamæri vegna kolefnis. Umhverfis-, orku- og
    loftslagsráðherra mun leggja fram frumvarp í þessu skyni síðar á þessum
    þingvetri.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það var haft samráð við utanríkismálanefnd og
    líka umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Nefndirnar gerðu ekki
    athugasemdir við upptöku gerðanna í EES-samninginn. Ég vil geta þess að
    nánari upplýsingar, m.a. um áhrif innleiðingar gerðanna, má finna í
    greinargerðinni í tillöguskjalinu og ég legg því til að þegar þessari
    umræðu lýkur verði tillögunni vísað til hæstv.
    utanríkismálanefndar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>