<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:31:22" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:32:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:31:22">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Í aprílmánuði var undirritað samkomulag milli
    þingflokksformanna er varðaði lög um stjórn fiskveiða sem sneri að því að
    heimiluð voru til viðbótar 2.700 tonn í strandveiðar en í staðinn yrði
    ekki hróflað við línuívilnun eða rækju- og skelbótum. Það var skrifað
    undir sérstakt samkomulag af þessu tilefni. Með reglugerðarsetningu núna
    14. september fer hæstv. innviðaráðherra algerlega gegn þessu samkomulagi.
    Samkomulagið miðaði að því að það yrði ekki hróflað við rækju- og
    skelbótum eða línuívilnun fyrr en að höfðu samráði við einn
    stjórnarþingmann og einn stjórnarandstæðing í tengslum við frumvarpsdrög
    að nýrri uppstokkun á pottakerfinu sem ráðherra ætlaði að koma með í
    haust. Með reglugerðarsetningunni breytir hann algjörlega þeim forsendum
    sem samningurinn kveður á um. Ég velti fyrir mér, virðulegi forseti,
    <ns:bjalla/> af því að traust er gríðarlega mikilvægt hér á Alþingi: Hvað
    eigum við hér í stjórnarandstöðunni að gera <ns:bjalla/> þegar samningar
    þessa eðlis eru ekki efndir, skriflegir samningar, og ráðherra ætlar sér
    hreinlega ekki að gera neinar ráðstafanir til að breyta þessu
    máli?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>