<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:33:04" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:34:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:33:04">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að taka undir með hv. þm. Ólafi
    Adolfssyni og lýsa vonbrigðum mínum, miklum vonbrigðum mínum með að það
    samkomulag sem þingflokksformenn gerðu hér í apríl varðandi skel- og
    rækjubætur og breytingarnar á 5,3%-pottinum hafi ekki verið virt. Ég velti
    fyrir mér ástæðunni. Ég velti því líka fyrir mér, virðulegur forseti, eins
    og hv. þm. Ólafur Adolfsson kom svo vel inn á áðan, að í störfum okkar
    þingflokksformanna skiptir gríðarlegu máli að það sé traust og trúnaður og
    að við getum treyst því að það samkomulag sem við skrifum undir sé virt.
    Það er dapurlegt og sorglegt að upplifa það að það sé ekki gert í þessu
    máli <ns:bjalla/> og það mun örugglega gera þá vinnu sem er fram undan
    <ns:bjalla/> í þinginu hjá okkur þingflokksformönnum miklu mun erfiðari en
    hún þarf að vera.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>