<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:34:39" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:35:57 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:34:39">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil taka undir það sem hv. þingflokksformenn
    Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa sagt hér á undan. Þetta er
    auðvitað alveg ótrúleg staða sem er að teiknast upp hérna. Í eina tíð var
    hægt að semja munnlega um frágang og framgang mála. Síðan hefur þurft að
    gera það skriflega á seinni tímum en nú er skyndilega komin upp sú staða
    að skriflegt samkomulag þingflokksformanna um fyrirkomulag og framgang til
    lúkningar máls heldur ekki. Það er auðvitað þannig að virðulegur forseti
    verður að stíga inn í þetta svo eitthvert skikk geti verið á störfum í
    þinginu undir lok þings í desember annars vegar og síðan þegar líður að
    vori og sumri eftir atvikum. Þetta er bara grafalvarlegt mál, að ráðherrar
    Flokks fólksins í þessu tilviki telji það léttvægt að brjóta samkomulag
    sem þarna var undirritað og þekki ég aðeins til þess hvernig það
    atvikaðist. Enn galnara verður þetta þegar liggur fyrir að samkomulagið
    var skriflegt. Svo fara menn undan í flæmingi og með skætingi. Þetta getur
    ekki verið staðan í þinginu. <ns:bjalla/> Virðulegur forseti verður að
    stíga inn í þetta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>