<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:36:05" skst="JGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:37:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:36:05">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með hv. þingmönnum sem hafa
    komið hér á undan. Á hvaða stað erum við komin þegar skriflegir samningar
    halda ekki? Þetta eru ekki munnlegir lokasamningar, þetta eru skriflegir
    samningar. Svo bara þóknast ráðherrum að fara ekki eftir skriflegum
    samningum sem er búið að gera hér á milli flokka, stjórnar og
    stjórnarandstöðu. Er það orðið þannig, virðulegur forseti, að við þinglok
    þurfi hér að fara að mæta með lögfræðinga eða þarf ríkislögmaður eða
    umboðsmaður Alþingis að vera viðstaddur til að votta? Hvert erum við komin
    þegar það er orðið eitthvert geðþóttaákvörðunarvald viðkomandi ráðherra
    hvort hann virði þá skriflegu samninga sem eru gerðir hér á milli flokka?
    Við erum komin á vondan stað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég treysti því að virðulegur forseti grípi hér
    inn í og leiðrétti þetta mál strax.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>