<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:37:22" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:38:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:37:22">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það er greinilegt að þingmenn stjórnarandstöðunnar
    fara hér mikinn vegna máls sem mun verða á dagskrá atvinnuveganefndar
    innan tíðar. Það er búið að ákveða að það verði haldinn opinn fundur þar
    sem innviðaráðherra fer yfir málið og ég átta mig ekki alveg á þessum
    æsingi yfir málinu þegar það er ljóst að það verður farið yfir það á opnum
    fundi. Hvers vegna er verið að gera það hér undir fundarstjórn forseta?
    Það er illskiljanlegt. Ef skriflega samkomulagið er lesið þá er nokkuð
    ljóst að reglugerðin sem var sett er alveg innan samkomulagsins. Mögulega
    hefði ráðherra átt að hafa samráð áður en reglugerðin var sett, en eins og
    ég sagði fyrr í ræðu minni er málið á dagskrá eða mun vera á dagskrá
    atvinnuveganefndar þannig að ég bið félaga mína, hv. þingmenn í
    stjórnarandstöðunni, að anda með nefinu. Þeir munu fá að ræða við ráðherra
    og fara yfir málið og það mun verða skýrt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>