<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:38:39" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:39:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:38:39">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Mig langar að taka undir orð kollega minna í
    stjórnarandstöðunni. Það er náttúrlega fullkomlega óþolandi þegar gert er
    samkomulag að það skuli ekki halda. Ætla menn þá bara að standa frammi
    fyrir því að það sé ekki hægt að gera hér samkomulag til framtíðar? Ef það
    er skrifað undir samkomulag þá ætlast ég til þess að það haldi. Að öðrum
    kosti er ekki hægt að semja um nokkurn skapaðan hlut við þann meiri hluta
    sem er í þinginu. Það er hreinlegast að hæstv. innviðaráðherra, sem setur
    þessa reglugerð, dragi hana til baka. Það er það eina í stöðunni fyrir
    hæstv. ráðherra.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>