<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:39:45" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:41:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:39:45">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Þetta snýst ekki um það hvort atvinnuveganefnd
    muni fjalla um málið eða ekki. Þetta hefur akkúrat ekkert að gera með það
    hvort atvinnuveganefnd Alþingis fjallar um málið eða ekki. <ns:frammíkall skst="SigurjÞ">Nú? </ns:frammíkall>Nei, þetta fjallar nefnilega um að
    standa við gefin orð og samninga og skuldbindingar, skriflega í þessu
    tilfelli. Um það snýst málið, hv. þm. Sigurjón Þórðarson, hvort við
    stöndum við þá samninga sem við gerum okkar í milli hér í þessu húsi. Það
    er miður, eins og ég sagði hér áðan, að verða vitni að því að það er verið
    að brjóta samning. Það var algerlega kýrskýrt og ljóst í hugum okkar allra
    sem skrifuðum undir þennan samning og vorum í þessu samtali, sem var ekki
    hv. þm. Sigurjón Þórðarson, um hvað við vorum að semja. Það var algjörlega
    ljóst. <ns:bjalla/> Og þó að það geti vel verið að það sé upplifun
    þingmannsins Flokks fólksins að það hafi verið einhvern veginn öðruvísi þá
    skal ég leiðrétti það hér og nú: Það var alls ekki þannig.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>