<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:41:21" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:42:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:41:21">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég kem bara hingað upp til að þakka hv. þm.
    Sigurjóni Þórðarsyni fyrir að koma hér upp í ræðustól og viðurkenna það þó
    að ráðherrann hefði, eins og hann orðaði það, með leyfi forseta, mögulega
    átt að hafa samráð um setningu þessarar reglugerðar. Ég geri reyndar
    athugasemdir við að hann telji að hann hafi mögulegt átt að gera það. Hann
    átti hreinlega að gera það í ljósi samkomulags sem hér var sett undir lok
    síðasta þings eða á síðasta þingi, um samráð vegna þessara mála. En það er
    gott að það sé hér kominn a.m.k. einn þingmaður ríkisstjórnarflokkanna sem
    viðurkennir það að ráðherra hefði mögulega átt að hafa þetta samráð.
    Ráðherrar verða að hafa það í huga að þeir eru ekkert eyland hér með sín
    mál á þinginu. Það er samið, alvanalegt. Það er samið um framgang mála og
    það átti við í þessu máli og hæstv. innviðaráðherra átti að hafa samráð um
    framgang þessarar reglugerðar eða þessa þess máls sem reglugerðin kveður á
    um.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>