<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:42:46" skst="GAS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:43:55 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:42:46">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég kem hér upp undir þessum lið aðallega til að
    lýsa því yfir að mér þykir afar miður að fólk upplifi að hér hafi
    samkomulag verið brotið. Það er alvarlegt að svo sé. Það er nóg að það sé
    upplifun fólks að samkomulag hafi verið brotið, það er miður, því traust
    milli þingflokksformanna skiptir miklu máli. Það er þó mikilvægt, í ljósi
    þeirra orða sem hér hafa fallið, að taka það skýrt fram að það samkomulag
    sem undirritað var síðastliðið vor sneri að breytingu á lögum, að fresta
    breytingu á lögum inn í heildarendurskoðun haustsins og að innviðaráðherra
    myndi boða fulltrúa frá meiri og minni hluta á sinn fund áður en
    frumvarpið kæmi fram. Það frumvarp hefur ekki komið fram og búið er að
    boða til samráðsfundarins. Þetta er það sem stendur í samkomulaginu.
    Samkomulagið sneri ekki að reglugerð. Þó að reglugerðin snúi að pottunum
    þá er það ekki breyting á lögum sem var það sem samið var um að fresta inn
    í haustið og ákveðið var að boða samráðsfund með meiri og minni hluta. Það
    hefur verið gert og mun verða gert. En ég ítreka að mér þykir miður að
    fólk upplifi að samkomulag hafi verið brotið. Það er alvarlegt í sjálfu
    sér.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>