<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:44:06" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:45:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:44:06">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Fyrir þá sem hlusta á þetta og hugsa: Er
    alvanalegt að gera skrifleg samkomulög? þá hefur það alla vega ekki verið
    þannig. Hér í þessu húsi hefur almenna reglan verið sú að það þurfi ekki
    að skrifa svona hluti niður vegna þess að menn geta treyst því sem sagt
    er. Það er almenna reglan. Það hafa verið undantekningar en þær eru mjög
    fáar. Ef af einhverjum ástæðum er komið eitthvert vantraust þá skrifa menn
    niður samkomulag og það er bara mjög sjaldan sem það gerist. En ef við
    erum komin á þann stað að það er ekki hægt að treysta því sem er skrifað,
    hvernig ætla menn þá að vinna hér áfram? Það dugar ekki, með fullri
    virðingu, að halda fundi í nefndum. Hvernig eigum við að klára þinglok
    þegar menn semja um hluti, og nú hafa flestir sem eru hér verið beggja
    vegna borðs, ef það er ekki hægt að treysta skriflegum samningum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>