<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:45:30" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:46:56 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:45:30">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Í ljósi orða hv. þm. Guðmundar Ara
    Sigurjónssonar vil ég bara taka eftirfarandi fram: Það er auðvitað dálítið
    sérstakt, hafandi gert þetta samkomulag og verið aðili að þessu
    samkomulagi — reyndar var hv. þingmaður ekki hluti af því heldur hv. þm.
    Arna Lára Jónsdóttir fyrir hönd Samfylkingarinnar og væri auðvitað
    áhugavert að heyra í henni í þessari umræðu. Það sem þingmaðurinn er í
    raun að segja er að strax innan við 40 dögum eftir að við undirrituðum
    þetta samkomulag þá geti ráðherra ákveðið með reglugerðarsetningu, þrátt
    fyrir þetta samkomulag, að færa í reglugerð rækju- og skelbætur annars
    vegar og línuívilnun hins vegar niður í 1 tonn hvort. Væri hann þá samt
    sem áður að efna samkomulagið? Hvernig dettur mönnum í hug að bera þetta á
    borð hér í þessari pontu? Það er með ólíkindum. Það vissu allir sem voru á
    þessum fundi um hvað væri verið að semja. Það vissu allir
    þingflokksformenn nákvæmlega um hvað menn voru að semja. <ns:bjalla/>
    Ráðherrann er hins vegar kolrangstæður í málinu og það er ástæðan fyrir
    því að hér er tekið til varna. Ég hugsa með mér: Hefði ekki verið
    skynsamlegra að biðjast bara einfaldlega afsökunar á þessari dellu í
    ráðherra?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>