<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:47:16" skst="SigurjÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:48:31 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:47:16">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það er nú rétt að ítreka það að samkomulagið sneri
    fyrst og fremst að fyrirhuguðu frumvarpi og lagabreytingu en ekki heimild
    ráðherra til að setja reglugerð. Ef maður les samkomulagið eins og það er
    skrifað stendur það upp úr og það er rétt að undirstrika það í umræðunni.
    Síðan er rétt að velta þessu efnislega fyrir sér: Hvers vegna leggur
    stjórnarandstaðan ofuráherslu á að ekki verði breytingar á úthlutunum á
    bótum sem urðu vegna áfalla fyrir aldarfjórðungi? Hvers vegna við viljum
    festa þennan litla byggðapott í því að halda áfram að styðja hér bætur
    vegna áfalla í veiðum á skel og rækju alveg fram í eilífðina.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég held að þetta sé spurning sem fólk ætti að spyrja sig: Hvað
    liggur þarna að baki <ns:frammíkall/> hjá stjórnarandstöðunni, að vilja
    ekki breyta þessum þáttum og halda áfram með þessar bætur fram í
    eilífðina? Það er verið að uppfylla samkomulagið eins og það stendur. Ég
    ítreka <ns:bjalla/> að það hefði farið betur á því ef samráð hefði verið
    haft <ns:bjalla/> áður en reglugerðin var sett.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>