<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:48:44" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:49:58 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:48:44">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er svo sem ekkert nýtt í því að hv. þm.
    Sigurjón Þórðarson lesi eitthvað annað út úr samkomulagi heldur en allir
    aðrir. Ég held að við vitum öll hvað hér er á ferðinni. Nú geta menn haft
    allar skoðanir á málinu. Af hverju er það þannig að menn líta ekki til
    byggðafestu þegar menn eru að hræra í þessum pottum? gæti maður spurt, en
    við erum ekkert að ræða það. Það sem við erum að ræða er í hvaða stöðu
    Alþingi Íslendinga er þegar ekki er hægt að treysta skriflegum samningum
    við þinglok. Í hvaða stöðu erum við komin? Ég vek athygli á því að þeir
    sem eru í stjórn núna voru í stjórnarandstöðu; þeir sömdu við stjórnina um
    ákveðna hluti, eiginlega alltaf án þess að það væri skriflegt vegna þess
    að menn gátu treyst orðum. Nú er það búið. Það er það sem er
    langalvarlegast í þessu <ns:bjalla/> með fullri virðingu fyrir málinu sem
    um er rætt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>