<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-10-08T13:50:07" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-10-08 13:51:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="15" lgþ="158" tími="2026-10-08T13:50:07">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="þs" nr="82">
      <ns:málsheiti>samkomulag þingflokksformanna við þinglok</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það er auðvitað þannig að orð hv. þm. Sigurjóns
    Þórðarsonar í þessari umræðu eru sérstök, svo vægt sé til orða tekið. En
    það verður að halda því til haga varðandi samkomulagið sem var gert í
    apríl síðastliðnum að stjórnarandstaðan stóð við sitt. Það eru
    stjórnarflokkarnir sem eru ekki að standa við sitt og ég bara óska hv.
    þingflokksformanni Samfylkingarinnar, sem fær það verkefni að leiða
    þinglok til lykta í desember og síðan í vor eða sumar, alls hins besta því
    að staðan hvað slík samtöl varðar er auðvitað gjörbreytt ef þetta verður
    niðurstaðan. Það er auðvitað þannig að ráðherra er kolrangstæður í málinu
    en stjórnarflokkarnir, með aðstoð virðulegs forseta, verða auðvitað að
    finna einhverja leið til að vinda ofan af þessu rugli sem hér blasir við
    okkur. Að öðrum kosti er hér allt breytt og ég er því miður ekki að orða
    þetta með þessum hætti í fyrsta skipti á þessu kjörtímabili. Þetta hefur
    verið æðisérstakt á köflum. En ef menn ætla að koma sér á þann stað að
    skriflegt samkomulag, skriflegir samningar, haldi ekki þá verð ég bara að
    biðja um aðstoð virðulegs forseta við að finna með hvaða hætti við í
    stjórnarandstöðunni eigum að geta treyst stjórnarflokkunum aftur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>